Breytt mataræði og hreyfing

 

Ef það er mikil streita í lífi þínu þarftu sérstaklega að passa upp á mataræði og hreyfingu því streitan er kærulaus með mataræði og matur er huggun.

Kannski líður þér ágætlega með aukakílóin og þau eru alls ekkert að trufla þig en um leið og þú verður kærulaus með þyngdina ertu í hættu með að þyngjast meira.

Rangt mataræði og hreyfingaleysi skapar bólgur í líkama og getur kallað á stoðkerfisvanda. Of hár blóðþrystingur getur svo kallað á enn fleiri kvilla.

Megrun er þó eitthvað sem þú ættir að forðast og best af öllu er að geta borðað nánast allt en þó er misjafnt hvað hentar hverjum og einum.
Fáðu þér einu sinni á diskinn, minnkaðu brauð um helming eða leyfðu því að detta út og losaðu þig alfarið við gos. Til að hætta að borða kex, brauð og sælgæti þarftu að hætta að kaupa það. Næst þegar þú ferð í verslun geturðu hugsað að það sé gler fyrir hillunum sem þú ert vön/vanur að sækja í svo það er einfaldlega ekki í boði lengur. Leyfðu þér eitthvað þegar þú hittir vini á kaffihúsi eða færð boð í afmæli en slepptu því heima. Það sem er ekki til heima verður ekki borðað heima.

Það er mikilvægt að byrja hægt og rólega á breyttu mataræði en ekki af einhverju kappi því þannig mistekst okkur frekar svo á meðan þú tekur sykurinn út þarftu mögulega að borða meira af einhverju öðru til að halda orku og þá sérstaklega ef þú ert að hreyfa þig mikið.

Best er að byrja á að minnka allt og breyta litlu nema sykurinn fer út.

Við stöndum frammi fyrir því daglega að velja hvað við ætlum að borða.
Við erum mjög vanaföst og borðum yfirleitt það sama eins og við keyrum alltaf sömu leið í vinnuna þó við gætum farið aðra leið.

Með hjálp dáleiðslu er hægt að breyta þessum vana og eru nokkrar leiðir mögulegar. Ein þeið gæti verið þessi: Ég kalla fram hlutann af þér sem hefur stjórnað mataræðinu og bið hann um að segja mér hvað hann vilji kalla sig.
Segjum að hann vilji kalla sig þægindi.
Þægindi vill vera latur og borða óhollan mat eða hann vill vera mjög duglegur að elda og lætur jafnvel makann fá matarást á sér. Þægindi er ekkert endilega að elda óhollan mat en hann elskar að borða og jafnvel drekka góð vín með matnum.
Þægindi vill svo kaupa bland í poka eða ís og sitja fyrir framan sjónvarpið eða tölvuna á hverju kvöldi í staðinn fyrir að fara í ræktina eða út að ganga.
Hann heldur að þetta líf sé það besta og það þægilegasta fyrir hann.

Einhversstaðar lengra inni er annar hluti af þér sem ég kalla fram. Segjum að sá hluti heiti skynsemi. Skynsemi vill hreyfa sig meira en hann gerir það ekki því hann hefur ekki tíma. Skynsemi vinnur mikið og aflar peninga fyrir heimilið. Skynsemi kemur börnunum í skólann og passar upp á að allt gangi eftir röð og reglu.
Skynsemi er þreyttur á að vera of þungur, drekka of mikið og gera aldrei neitt annnað en að horfa á sjónvarpið á kvöldin. Ég fæ þægindi og skynsem til að tala saman og komast að niðurstöðu í þessu máli og kannski er þægindi til í að víkja aðeins fyrir skynsemi og kannski er skynsemi tilbúinn að bjóða öðrum hluta að stíga fram en hvað sem gerist þá næst oft samkomulag á milli hluta sem verður upphaf af breyttu mataræði og betra lífi.