Dáleiðsla FullkomnunaráráttaStreitaKvíði / ÞunglyndiHætta að reykjaVefjagigtBreytt mataræði og hreyfingAukið sjálfstraustMeðvirkniÍþróttir og sviðslistir Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð Hætta að reykja Sjálfstyrkingarnámskeið Um mig Söngkennsla Söngnámskeið Tónlistarviðburðir Blogg um dáleiðslu Reynslusögur af dáleiðslu S: 698-7807 Bóka tíma
← Söngkennsla
Tónlist

Tónlistarviðburðir

Óperutónleikarnir Tálkvendi og töfrar verða haldnir þann 14. febrúar 2027 kl 15.00 í hinni hljómfögru Háteigskirkju. Hólmfríður byrjaði mjög ung að syngja og fagnar 40 ára söngafmæli á árinu. Á þessum tónleikum fær hún til liðs við sig þekkta óperusöngvara, Jóhann Smára Sævarsson, Hlín Petursdóttir Behrens og Gerði Bolladóttur. Á tónleikunum mun Hólmfríður flytja hlutverk Carmenar úr óperunni Carmen og hlutverk Dalilu úr óperunni Samson og Dalila. Hún mun einnig stíga í hlutverk Hans úr óperunni Hans og Gréta og rússneska prinsins Orlofsky úr Leðurblökunni. Ástríður Alda Sigurðardóttir sem er einn fremsti píanóleikari landsins mun spila á tónleikunum. Hólmfríður og Ástríður hafa unnið saman síðust árin. Þær voru með tónleika í mars 2026 í Hannesarholti þar sem flutt voru ljóð eftir Jean Sibelius og Atla Heimi Sveinsson og í apríl 2025 þar sem flutt voru þekkt ljóð eftir Schubert og Brahms í Dómkirkjunni í Reykjavík.

facebook.com/daleidari →
Hólmfríður Jóhannesdóttir

Hringdu endilega í síma 698 7807 eða sendu tölvupóst á hj@daleidari.is ef tímar á bókunarvef henta ekki

Bóka tíma
Deila Deila á Facebook✉ Senda í pósti